Fólkið og fyrirtækið
LARSEN hönnun og ráðgjöf ehf. er teiknistofa, stofnuð árið 2015 af byggingafræðingnum og húsasmíðameistaranum Bent Larsen Fróðasyni sem er núverandi eigandi fyrirtækisins.
Meginstarfsemi stofunnar er almenn hönnun á byggingum þ.e.a.s aðaluppdrættir (arkitektúr), burðarþol og lagnir bygginga. Helstu verkefni stofunnar eru hönnun á einbýlishúsum, parhúsum, raðhúsum, fjölbýlishúsum, hesthúsum, reiðhöllum, fjósum, hótelum sem og ýmissa annarra bygginga. Mikill fjölbreytileiki er því á allri hönnun á stofunni sem og skipting verkefna á öllu landinu þó allra mest af verkefnum komi frá suðurlandsundirlendinu.
Viðskiptavinir stofunnar spanna allt frá einstaklingum til stórra framkvæmdaaðila, þó stærsti hlutinn komi frá verktökum á svæðinu sem leitar til stofunnar vegna persónulegra, góðrar og skilmerkilegrar þjónustu og samskipta. Markmið stofunnar er að hanna byggingar sem henta vel hverju verkefni fyrir sig og skila vönduðum vinnubrögðum til okkar viðskiptavina.
Teymið

Bent Larsen
- 2011 — Löggilding hönnuða, aðaluppdrættir, Mannvirkjastofnun
- 2011 — Námskeið í áhættumati á litlum fyrirtækjum
- 2009 — Starfsleyfi byggingarstjóra I og III
- 2009 — Löggilding húsasmíðameistara
- 2008 — Byggingafræðingur B.sc., VIA University College Horsens
- 1996 — Sveinspróf í húsasmíði, Fjölbrautaskóli Suðurlands

Eva Björk Birgisdóttir
- 2005 — Tækniteiknari, Iðnskólinn í Reykjavík
- 2003 — Stúdent, málabraut, Fjölbrautaskóli Suðurlands

Jódís Ásta Gísladóttir
- 2012 — Byggingafræðingur B.sc., VIA University College Aarhus
- 2005 — Tækniteiknari, Iðnskólinn í Hafnarfirði
- 2001 — Próf af hönnunarbraut, Iðnskólinn í Hafnarfirði
- 1997 — Stúdentspróf, félagsfræði- og sálfræðibraut, Fjölbrautaskóli Suðurlands

Ólafur Tage Bjarnason
- 2014 — Löggilding hönnuða, aðaluppdrættir, Mannvirkjastofnun
- 2008 — Byggingafræðingur B.sc., KEA Kaupmannahöfn
- 2006 — Iðnfræði, Háskólinn í Reykjavík
- 2006 — Löggilding húsasmíðameistara
- 2002 — Húsasmíði, FSu Selfossi
